Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4.1
4 of 8
Glæpasögur
„Bláleiftur er hreint mögnuð.“ - metsöluhöfundurinn Louise Penny
Lögregluforinginn Jimmy Perez á Hjaltlandseyjum fer með unnustu sína heim á uppvaxtarslóðir sínar á Friðarey, paradís fuglaskoðara, þar sem ókunnugir eru litnir hornauga. Stuttu síðar er framið morð í fuglaskoðunarstöð eyjarinnar. Fárviðri verður til þess að eyjan einangrast um hríð frá umheiminum. Það hamlar lögreglurannsókninni og Perez verður að reiða sig á gamaldags aðferðir til að finna vísbendingar. Hann má engan tíma missa. Morðingi gengur laus og Perez óttast að hann láti til skarar skríða á ný.
Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjann Jimmy Perez, sem gerast á Hjaltlandseyjum (Shetland), hafa slegið í gegn. Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur gert vandaða sjónvarpsþætti eftir sögunum sem njóta mikilla vinsælda víða um heim.
„Cleeves er ... hin nýja Drottning.“ - Sunday Mirror
© 2020 Storyside (Hljóðbók): 9789179899370
© 2020 Ugla útgáfa (Rafbók): 9789935214041
Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 31 mars 2020
Rafbók: 23 oktober 2020
Íslenska
Ísland