Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4
Skáldsögur
Efniviður þessarar miklu skáldsögu Álfrúnar Gunnlaugsdóttur er spænska borgarastyrjöldin. Haraldur er einn þeirra fjölmörgu ungu manna á fjórða áratug seinustu aldar sem telur að heiminum standi ógn af uppgangi fasismans. Líkt og þeir fer hann til Spánar til að berjast í lýðveldishernum gegn herforingjaklíkunni og þeim hluta hersins sem gerði uppreisn gegn lýðveldinu og löglega kosinni stjórn þess. Hann kemur svo heim með óvenjulega lífsreynslu í farteskinu. Þegar árin færast yfir og það syrtir í álinn leitar hann á vit minninga um horfna vini og félaga sem tóku þátt í orrustunni við Ebro. Á sinn hátt er það glíma við samviskuna og sannleikann. Fæstir vita að þrír Íslendingar börðust í borgarastyrjöldinni spænsku. Bókin byggist að hluta til á frásögu eins þeirra. Hér er sagt frá af þekkingu svo úr verður áhrifamikil saga. Yfir Ebrofljótið hlaut frábærar viðtökur þegar hún kom fyrst út haustið 2001, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna það ár og að auki tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2003.
© 2021 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979342953
Útgáfudagur
Hljóðbók: 22 mars 2021
Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka
Yfir 400 titlar frá Storytel Original
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
2 aðgangar
3990 kr /á mánuðiÍslenska
Ísland