Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Jón Arason var sonur einstæðrar móður, ólst upp við sára fátækt en varð biskup aðeins 36 ára. Jón var gæddur persónutöfrum, dansmaður og eitt vinsælasta skáld á sinni tíð – en með járnharðan vilja. Að sögn Dana voru Íslendingar hræddir við hann sem fjandann sjálfan. Jón leiddi hjá sér siðaskiptin í nær áratug. Hann náði samningum við Danakonung um að Hólabiskupsdæmi yrði áfram kaþólskt og Sigurður sonur hans yrði næsti biskup. Staða hans virtist trygg. En árið 1547 hófst verslunarstríð á Íslandi þegar Danir reyndu að ryðja Þjóðverjum burt. Jón greip tækifærið og hóf vopnaða uppreisn með stuðningi Þjóðverja. Hann lét lýsa landið kaþólskt sumarið 1550 og bauð að sögn Þýskalandskeisara að innlima Ísland. Jón tapaði örlagaríkri orrustu á Sauðafelli haustið 1550 og var háls- höggvinn ásamt tveim sonum sínum. Í kjölfarið sölsaði konungur undir sig auðlindir landsins – jarðeignir, fisk og brennistein – og lokaði á samskipti Íslendinga við erlendar þjóðir með verslunareinokun. Við tóku hinar myrku aldir Íslandssögunnar með fátækt og einangrun. Dr. Ásgeir Jónsson fer hér yfir ævintýralegt lífshlaup Jóns og setur uppreisn hans í samhengi við evrópska valdapólitík. Hvaða möguleika hafði Hólabiskup gegn Dönum? Það er Arnar Jónsson leikari sem les.
© 2021 Almenna bókafélagið (Hljóðbók): 9789935517746
Útgáfudagur
Hljóðbók: 9 februari 2021
Merki
Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka
Yfir 400 titlar frá Storytel Original
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
2 aðgangar
3990 kr /á mánuðiÍslenska
Ísland