Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
3.4
5 of 8
Glæpasögur
Wilhelm Jacobsson er smábóndi sem skrimtir og stritar í sífelldum erjum við nágranna sína. Auk þess er hann kvæntur þorpsskækjunni sem átti barn fimmtán ára að aldri og hefur ávallt átt undir högg að sækja í kyrrlátum smábænum, þar sem sögusagnir fara eins og eldur um sinu. Einn daginn hverfur Wilhelm með húð og hári. Maria Wern og félagar úr rannsóknarlögreglunni höfðu hugsað sér að njóta sumarsins í afleysingastörfum á Miðaldaviku í Gotlandi. Hafa það notalegt, synda í ánni, klifra í dröngum og rölta um fornar slóðir. En illa rætist úr áætlunum þeirra þegar rannsóknin á hvarfi Wilhelms er lögð á herðar þeim. Áður en langt um líður finnst lík af manni í vörðu frá Járnöld. Hann hefur verið myrtur og grafinn að höfðingjasið. Getur verið að þetta sé Wilhelm, smábóndinn sem hvarf? Fórnarlömbunum fjölgar óðum og ljóst er að kaldrifjaður morðingi leikur lausum hala í Gotlandi. Maria þarf að hafa sig alla við til að hafa hendur í hári hans áður en enn fleirum verður komið fyrir kattarnef. Silfurkórónan er fjórða bókin í seríunni um rannsóknarlögreglukonuna sívinsælu Mariu Wern. Æsispennandi morðgáta eftir sænsku glæpasagnadrottninguna Önnu Jansson sem svíkur engan. María Dögg Nelson les og dregur þig listilega inn í drungalegan söguheim þar sem hættur leynast á hverju strái.
© 2024 Storyside (Hljóðbók): 9789180842594
© 2024 Storyside (Rafbók): 9789180842600
Þýðandi: Friðrika Benónýsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 24 januari 2024
Rafbók: 24 januari 2024
Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka
Yfir 400 titlar frá Storytel Original
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
2 aðgangar
3990 kr /á mánuðiÍslenska
Ísland