Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4
Skáldsögur
Jakob á í baráttu við sjálfan sig og framandi umhverfi þar sem hann dvelst sumarlangt í sveitinni í byrjun sjöunda áratugarins. Hann var sendur í sveit til Guðbjarts, kotbóndans sem býr með fjölskyldu sinni óþægilega nálægt héraðshöfðingjanum sem er svo vel kvæntur.
Fátækt og ríkidæmi takast á í sérkennilega frumstæðu sveitasamfélagi. Meðan synir nágrannans stunda sjóinn á mótorbát dyttar Guðbjartur að girðingum og Benni, sonur hans, fiskar í soðið á árabát.
Heimasæturnar á báðum bæjunum koma líka við sögu.
En nýir tímar eru í vændum og óvæntir atburðir taka að gerast. Átök fullorðna fólksins og blóðhiti unga fólksins leiða til ískyggilegra atvika.
Þetta er spennandi en jafnframt ljúfsár og fyndin frásögn af dvöl drengs úr höfuðborginni í sveitinni, basli í búskap, merkilegu mannlífi og ástríðufullum ástum unglinga.
Rammíslenskur veruleiki og ævintýri í senn. Kjarnyrt mál Ólafs nýtur sín til fulls og hver setning vitnar um næma sýn hans á mannlegt eðli. Kjartan Darri Kristjánsson les.
© 2020 Storyside (Hljóðbók): 9789152108895
Útgáfudagur
Hljóðbók: 13 juli 2020
Íslenska
Ísland