Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
4.1
6 of 8
Glæpasögur
Gamall lögreglumaður, sem dæmdur var í fangelsi fyrir spillingu, kallar Veru Stanhope á fund sinn. Hann kveðst búa yfir upplýsingum sem gætu leitt til þess að gamalt mannshvarf upplýsist. Hann vísar Veru á staðinn þar sem finna megi lík mannsins, en við uppgröft koma óvænt í ljós tvær beinagrindur. Rannsókn málsins vindur upp á sig og tengist með óþægilegum hætti nánum vinum Hectors, föður Veru.
Bækur breska verðlaunahöfundarins Ann Cleeves um Veru Stanhope njóta mikilla vinsælda, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta sem meðal annars hafa verið sýndir hér á landi. Hér í frábærum lestri Margrétar Örnólfsdóttur.
© 2021 Storyside (Hljóðbók): 9789152162569
© 2021 Ugla útgáfa (Rafbók): 9789935215321
Þýðandi: Þórdís Bachmann
Útgáfudagur
Hljóðbók: 18 juni 2021
Rafbók: 19 augusti 2021
Íslenska
Ísland