Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Einstök uppákoma á sér stað úti á rúmsjó, um borð í togara sem piltungurinn Máni Árfells fékk far með heim frá Englandi. Þar með fer af stað flókin atburðarás sem hefur áhrif á líf fjölda fólks og gerbreytir aðstæðum heilu fjölskyldnanna. Sunna, tvíburasystir Mána, er reyndar söguhetjan í bókinni og þarf eftir þetta að berjast við fordóma, líka móður sinnar sem finnst hún aldrei gera neitt rétt. Skipstjórinn á Mávinum þarf að kljást við öldur bæði á sjó og landi og reynir að bjarga málum hér og þar. Að lokum komast þó allir vegalausir í einhvers konar höfn ...
Guðbjörg Hermannsdóttir (1917–1997) ólst upp í stórum systkinahópi á Bakka við Húsavík. Hún giftist Braga Guðjónssyni klæðskerameistara (1917–1983). Þau bjuggu alla tíð á Akureyri og eignuðust fimm börn. Meðal þeirra er Snjólaug Bragadóttir, rithöfundur og þýðandi.
Ljóst er að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, en ástarsögur Snjólaugar hafa notið gríðarlega vinsælda hjá hlustendum Storytel. Hér má því finna einstakt tækifæri til að kynnast íslenskri sveitarómantík eftir móður höfundarins sem færði okkur Ráðskona óskast í sveit, Undir merki steingeitar, Setið á svikráðum og fleiri dásamlegar sögur.
© 2019 Storyside (Hljóðbók): 9789178975716
Útgáfudagur
Hljóðbók: 12 april 2019
Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka
Yfir 400 titlar frá Storytel Original
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
2 aðgangar
3990 kr /á mánuðiÍslenska
Ísland