Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
3.9
8 of 9
Glæpasögur
Sönn saga um Herb Baumeister og hryllinginn á Refalautarbýli Haustið 1994 var Erich litli að leika sér á landareign fjölskyldunnar rétt norðan við borgina Indianapolis þegar hann fann mannabein. Mömmu hans, Julie, brá að vonum en pabbi hans, Herb, sagði að þetta væru leifar beinagrindar sem læknirinn pabbi hans hefði notað við kennslu. Hann hefði ekki vitað hvað ætti að gera við beinagrindina eftir að pabbi hans dó en ákveðið að lokum að grafa hana í jörðu svo að hún myndi ekki hræða neinn. Julie trúði manni sínum. Næstu misseri vöknuðu hins vegar með henni grunsemdir enda varð hegðun manns hennar æ undarlegri. Í júní 1996 þegar Herb var í burtu í fríi heimilaði hún lögreglunni að rannsaka landareign fjölskyldunnar. Á fáum dögum gróf lögreglan upp líkamsleifar ellefu karlmanna. Herb Baumeister viðurkenndi síðar að hafa myrt a.m.k. níu karlmenn til viðbótar á svæðinu við þjóðveg 70 milli sambandsríkjanna Indiana og Ohio. Er talið að hann sé einn stórtækasti raðmorðingi sögunnar. Þú þykist þekkja mig er áhrifamikil og óhugnanleg frásögn um einn dularfyllsta fjöldamorðingja Bandaríkjanna. Eins og í fyrri bókum skrifar Ryan Green á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu. Ragnar Hauksson þýddi. „Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann að þátttakanda í henni.“ – Blackbird
© 2023 Ugla (Hljóðbók): 9789935217707
© 2023 Ugla (Rafbók): 9789935216496
Þýðandi: Ragnar Hauksson
Útgáfudagur
Hljóðbók: 6 april 2023
Rafbók: 15 februari 2023
Merki
Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka
Yfir 400 titlar frá Storytel Original
Barnvænt viðmót með Kids Mode
Vistaðu bækurnar fyrir ferðalögin
Besti valkosturinn fyrir einn notanda
1 aðgangur
Ótakmörkuð hlustun
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
Fyrir þau sem vilja deila sögum með fjölskyldu og vinum.
2-6 aðgangar
100 klst/mán fyrir hvern aðgang
Engin skuldbinding
Getur sagt upp hvenær sem er
2 aðgangar
3990 kr /á mánuðiÍslenska
Ísland